Landrover

Freelander 2

FREELANDER 2
Freelander 2 í hnotskurn 
  • Freelander 2 er nýr frá grunni. Einstök hönnun ásamt tæknilegum útfærslum skipa honum sérstakan sess í flokki smærri og meðalstórra lúxus sportjeppa. 
  • Fjölhæfasti lúxus sportjeppinn í sínum flokki: Fágaðir aksturseiginleikar og þægindi annars vegar og framúrskarandi jeppaeiginleikar hinsvegar. 

  • Í boði með tveimur spánnýjum vélum, 3.2 ltr i6 vél og 2.2 ltr TD4 díselvél; fágaðir, kraftmiklir og sparneytnir afbragðskostir.

  • Með skynvædda Terrain ResponceTM aldrifskerfið, sem á sér enga hliðstæðu á markaðnum. 

  • Búinn nýjustu tækni og ríkulegum þægindum. 

  • Frumkynntur á Íslandi í enn betur búinni sport-útgáfu. 


Verðlisti 

Fáðu 360° nærmynd af nýjum Freelander 2
Sterkbyggður, fágaður, ævintýralega fjölhæfur og ríkulega búinn – nýi Freelander 2 lúxus sportjeppinn er frábærlega vel hannaður farkostur, ætlaður þeim sem vilja fá sem mest út úr lífinu. Fáðu nánari upplýsingar ásamt 360° nærmynd á nýju Freelander 2 örsíðunni
 


 
Að utan
 
Með Freelander 2 hefur Land Rover sett flokki smærri og meðalstórra lúxusjeppa ný viðmið.  Fágaðir drættir eru einkennandi fyrir sterkt svipmótið og fyrir vikið nær hönnunin að endurspegla af öryggi, það mikla og fjölhæfa afl sem er til staðar, ásamt mýkt og lipurð. Engum dylst, að þarna er á ferð hreinræktaður Land Rover í lúxusflokki.


Að innan
 
Stílhrein innrétting og úthugsað notagildi. Vandað efnisval, lúxus og þægindi einkenna hönnun Freelander 2  að innanverðu. Þegar betur er að gáð, kemur jafnframt í ljós, að stílhrein hönnunin hefur einnig tekið mið af notagildi bílsins fyrir eigandann. Rýmið er mikið, eða með því allra mesta í þessum flokki bíla og það er því rúmt um alla, jafnt bílstjóra sem farþega. Þá er farangursrými jafnframt yfrið eða samtals 1670 ltr.


Tæknilýsing
Eldsneytisnotkun, rúmtak, þyngd, veghæð, vaðdýpt, rými - tölurnar tala máli þessa áhugaverða lúxus sportjeppa hvað best. Hér færðu á einum stað allar þær upplýsingar sem þig vantar úr tæknilýsingu Freelander 2. Það á einnig við um vélakostinn, en Freelander 2 er í boði með tveimur spánnýjum vélum eða 2.2 ltr TD4 díselvél, sem skilar í fullum afköstum 160 hö og 400 Nm togi og 3.2 ltr i6 línusexu sem skilar 233 hö og 317 Nm.


Vélar
Freelander 2 kynnir tvær nýjar vélar sem skila óvenjulegu jafnvægi milli afkasta og eldsneytsisparnað. Sjálfstæð fjöðrun með mátulegu hjólamillibili ásamt vel hannaðri yfirbyggingu skila svo hágæða aksturseiginleikum og þægindum í akstri.


Öryggi
Öryggisbúnaður freelander 2 er af fremstu gerð og er hann eini sportjeppinn í sínum flokki sem hlotið hefur 5 stjörnur í öryggis-og árekstrarprófun NCAP. ETC-spólvörnin, ABS hemlakerfið og Terrain ResponceTM aldrifskerfið byggir á nýjustu tækni og lætur freelander 2 því einstaklega vel að stjórn, þó svo að akstursskylirði sé með lakara móti. Þá eru loftpúðarnir alls sjö talsins eða tveir frampúðar og tveirm hliðarpúðar umhverfis sætin ásamt hnépúða fyrir bílstjóra og tveir hliðarpúðar í fullri lengd hvor sínum megin við farþegarýmið.


Aksturseiginleikar
Afburða jeppaeiginleikar ásamt framúrskarandi aksturseiginleikum. Freelander 2 er frá öllum hliðum séð frábær farkostur. Þessa einstöku eiginleika má m.a. rekja til þess að hann er búinn skynvædda Terrain Response aldrifskerfinu og nýjustu
 kynslóðinni af HDC brekkubremsu (Hill Descent Control), en sá athyglisverði búnaður sér um sjálfvirka stjórnun á hemlakerfi bílsins þegar ekið er í miklum halla eða um hálar brekkur. Þar með getur þú einbeitt þér alfarið að því að stýra sjálfum bílnum, þegar ekið er við erfið skilyrði. Þetta eru aðeins tvö dæmi af mörgum um þann þróaða tæknibúnað sem Freelander státar af.

 

 

 



© 2009