



Fáir bílar hafa leikið tímann jafn grátt og gamli góði Land Roverinn. Þessi bíll er tímalaus kostasmíð sem hefur ótrúlega endingu og útlitið er fyrir margt löngu orðið sígilt og samofið Íslandssögunni. Þessi framúrskarandi bíll hefur nú verið framleiddur í meira en hálfa öld og alltaf er hann þekktur fyrir sömu seigluna og styrkinn.
Það má fullyrða að Land Rover Defender sé þessi gamli góði sem reynst hefur Íslendingum frábærlega enda er þessi sterki og stælti bíll sniðinn fyrir hérlendar aðstæður.
Framleiðendur Land Rover hafa haldið sig við hið stílhreina útlit frumgerðarinnar í meira en hálfa öld en hagnýta sér nú nýjustu tækni til að gera þennan bíl enn öruggari, aflmeiri og þægilegri.