Nýr Land Rover Discovery 4 er fáanlegur í tveimur grunngerðum sem kallast SE Windsor og HSE Windsor
Í Windsor aukahlutapakkanum sem er staðalbúnaður í bæði SE og HSE gerðunum eru leðursæti fyrir 6 farþega auk ökumanns, hiti í fram og aftursætum, hiti í framrúðu og málmlitur (metalic)
SE Windsor gerðin er búinn 2,7 lítra, 190 hestafla dísil túrbó vél sem skilar 440Nm við 1900 sn/mín. Meðal olíueyðsla í blönduðum akstri á SE Windsor er 10,2 lítrar/100km
HSE Windsor gerðin er búinn nýrri 3,0 lítra, 245 hestafla dísil túrbó vél sem skilar 600Nm við 2000 sn/mín. Þessi nýja dísilvél er ein öflugasta dísilvél sem fáanleg er í þessum flokki bíla. Meðal olíueyðsla í blönduðum akstri á HSE Windsor er 9,3 lítrar/100km. Annað sem er umfram í HSE Windsor gerðinni er t.a.m. rafknúnir aðfellanlegir speglar, fjarlægðarvari að framan, bluetooth símakerfi, iPOT tengi, upplýsingaskjár, val um viðar- eða háglanssvarta (Piano black) lista í innréttingu, Harman /Kardon hljómtæki með auka bassaboxi
Útlitslegur munur á SE Windsor og HSE Windsor er nánast enginn ef frá eru taldar álfelgur og dekk sem eru 18“- 255/60 R18AT á SE Windsor og 19“- 255/50 R19AT á HSE Windsor
Marg verðlaunað Terrain Response fjölstillanlegt drifkerfi er staðalbúnaður í báðum gerðunum. Drifkerfið gerir ökumönnum kleyft að velja á milli 5 mismunandi stillinga eftir undirlaginu sem ekið er á. Drifkerfi þetta gerir jafnvel byrjendur í akstri jeppa að færustu ökumönnum.
Hæðarstillanleg loftpúðafjöðrun er einnig staðalbúnaður í báðum gerðunum
Annar búnaður sem skrifað er um, á þessari heimasíðu, í tengslum við SE Windsor og HSE Windsor er staðalbúnaður í báðum bílunum. Rétt er að benda á að hægt er að panta í báðar gerðirnar ýmsan annan aukabúnað sem sölumenn Land Rover veita nánari upplýsingar um.