• Range Rover er best búni úrvalsjeppinn í lúxusflokki og merkisberi Land Rover sem slíkur. Hann er nú kominn í nýrri og enn glæsilegri útgáfu.
• TDV8 er ný og afar áhugaverð twin túrbó díselvél, sem bæst hefur við vélakost Range Rover, en í fullum afköstum skilar hún 272 hö (200 kW) og 640 Nm. Þarna er á ferð tæknilega fullkomin díselvél sem gefur 4.4 V8 og 4.2 V8 supercharged vélunum ekkert eftir í hröðun og vinnslu.
• Innanrými Range Rover er orðið enn fágaðra samfara nýrri innréttingu og enn betri rýmisnýtingu. Þá hefur öryggisbúnaður Range Rover verið uppfærður, auk þess sem hugað hefur verið að ýmsum handhægum breytingum á borð við aukið geymslurými og enn betri loftfrískunarbúnað.
• Aldrifskerfið Terrain Response hefur verið aðlagað Range Rover, en þessi framsækni búnaður samhæfir og lagar m.a. bensíningjöf, spólvarnir og loftfjöðrun að ólíkum akstursaðstæðum. Fyrir vikið nýtist torfæruhæfni Range Rover til fulls hvar sem er.
• 4-rása ABS, HDC hallabremsa (Hill Descent Control), ETC spólvörn (Electronic Traction Control) and DSC stöðugleikastýring (Dynamic Stability Control), Brembo bremsur af fremstu gerð.
• CommandShift™ 6-þrepa sjálfskipting.
• Aðlögunarhæft PTI samskiptakerfi með Bluetooth™ og DVD afþreyingarkerfi og 4x4 upplýsingakerfi, snertiskjár í lit
• Úrvals harman/kardon LOGIC7® premium hljómflutningskerfi með 14 hátöluðum og MP3 spilara