Landrover
Range Rover Sport Supercharged | Java svartur
RANGE ROVER SPORT

Range Rover Sport í hnotskurn

• Þrjár áhugaverðar vélar: 4,2 ltr V8 supercharged 390 ha vél, 4,4 ltr V8 299 ha vél og 2,7 ltr I6 190 ha túrbó díselvél.

• Hraðanæmt aflstýri og 6-þrepa sjálfskipting með CommandshiftTM beinskiptivali

• Terrain ResponseTM aldrifsbúnaður 

• Sportlegir aksturseiginleikar

Loftpúðafjöðrun

• Dynamic Response búnaður,
Bi-Xenon beygjuljós og skynvæddur skriðstillir (mism. eftir útgáfum)

RANGE ROVER SPORT S
RANGE ROVER SPORT SE
RANGE ROVER SPORT HSE
RANGE ROVER SPORT supercharged


Að utan
Range Rover Sport stendur fyrir kraftmikla eiginleika og einstaka akstursánægju. Ósvikin Land Rover hönnunin nýtur sín við allar aðstæður, á meðan glæsilegar álfelgur undirstrika ásamt ábúðarfullu grilli og hliðarventlum að þarna fer farartæki sem er samnefnari fyrir framsækna tækni og mikla torfæruhæfni.


Að innan
Þú ert við kjöraðstæður í Range Rover Sport. Sá eða sú sem við stýrið situr hefur fulla stjórn á aðstæðum þar eð afstaða sætis, stýris og stjórnbúnaðar mynda aðgengilega heild. Jafnframt er víðsýnt til allra átta út um víðar rúðurnar, sem getur haft sitt að segja við erfið akstursskilyrði. Þá er úr mörgum mismunandi áklæðum og innréttingum að velja, allt eftir þínum smekk, enda vitum við að litir og áferð skiptir máli.


Vélar og tækni
Range Rover Sport býr yfir þeim fágæta eiginleika að vera framúrskarandi farartæki við nánast allar aðstæður. Það má rekja til þess að þessi úrvalsjeppi er hvort tveggja í senn kraftmikill torfærujeppi og hraðskreiður sportbíll. Þú getur valið á milli 4,2 ltr V8 390ha og 4,4 ltr V8 299ha bensínvéla annars vegar og 2,7 ltr I6 190ha túrbó díselvélar. Allar eru þær ótrúlega skemmtilegar og tæknilega vel út færðar.


Aksturseiginleikar
Range Rover Sport er ríkulega búin, hvernig sem á hann er litið. Nánari athugun leiðir jafnframt í ljos, að hann byggir á framsækinni tækni og úthugsuðum þægindum, þar sem mikil natni hefur verið lögð í smáatriðin (sem eru auðvitað engin smá atriði). Kannaðu betur þennan spennandi tæknivædda heim sem Range Rover Sport stendur fyrir.

 

 



© 2009