NÝR RANGE ROVER SV

Fágaður. Glæsilegur. Einstakur. Range Rover sem skarar fram úr öllum öðrum.

LÚXUS Í RANGE ROVER

Veittu fallegu ytra byrðinu athygli, með sérhönnuðu framgrillinu og stuðaranum ásamt tveggja tóna Range Rover-áletrun. Komdu þér vel fyrir í sætum klæddum hálf-anilínleðri. Komdu við vönduð, gljáhvít stjórntæki úr keramiki. Hátíðleg stemning, hvert sem haldið skal.

SÉRSNIÐ FYRIR SV

Því fylgir persónuleg upplifun að setja saman sinn eigin Range Rover SV.Meðal einstakra efna fyrir SV er gljáhvít keramikáferð með upphleyptu mósaíkmynstri eða dökk, bogadregin áhersluklæðning með mósaíkinnfellingum úr málmi.

HNÖKRALAUSIR TENGIMÖGULEIKAR

Pivi Pro er auðskiljanlegt og auðvelt er að tengja það við snjallsíma, auk þess sem það nýtist farþegunum rétt eins og ökumanninum. Tveir 13,1" snertiskjáir, eingöngu fyrir SV, veita farþegum í aftursæti allar upplýsingar og afþreyingu sem þeir þurfa.

SV SIGNATURE SUITE

Fjögurra sæta SV Signature Suite býður upp á einstaka upplifun fyrir farþega í bílum með löngu hjólhafi, þar sem saman fara áreynslulaust notagildi og einstök þægindi.

SAMHLJÓMUR Í ÖLLU

Miðstokkur í fullri lengd í aftursætum er klæddur Windsor-leðri eða leðurlausu UltrafabricTM*,  með viðarspóni að ofan og innbyggðri stemningslýsingu. Stjórnsnertiskjár í aftursætum gerir farþegum í aftursæti kleift að stjórna þægindum og afþreyingu.

ÞÆGINDIN ERU FYRIR ÖLLU

SV Signature Suite gerir þægindum í Range Rover enn hærra undir höfði. Glasahaldararnir og upplýst lokið á kælihólfinu í miðstokknum eru rafstýrð og auðvelt er að stjórna þeim af snertiskjá stjórntækja í aftursætum. Dartington-kristalgler með SV-hönnun eykur enn á fágunina.

RÝMIÐ ER NOTADRJÚGT

Hægt er að stjórna rafknúna borðinu, sem er með sérmótaðri armstoð og sérhannaðri lýsingu, á snertiskjá stjórntækja í aftursætum. Undir því er pláss sem er nýtt á hugvitssamlegan hátt með innbyggðum og öruggum geymslurýmum í miðstokknum.

SV INTREPID-ÞEMA

Kraftmikil sérkenni.

ÁSÝND OG SMÁATRIÐI

Innanrýmið í þessu þema er meðal annars búið vönduðum viðarklæðningum og gljásvörtum keramikstýringum. Kolgrá málmhúðun og Atlas-grafítgrá áhersluatriði á ytra byrði gera þemað enn flottara.

ENN MEIRA SÉRSNIÐ

Auka má enn við kraftmiklar áherslur SV Intrepid-þemans með svörtum áherslulit á þaki, rauðum hemlaklöfum og gljásvörtum 23" 1077-felgum með Narvik-svörtum innfellingum og dökkri lakkáferð.

LEÐURLAUST

Sjálfbæra UltrafabricsTM leðurlausa klæðið er í boði í SV Intrepid-þemanu. Mjúkt, sveigjanlegt og sterkt efnið er með einstakri ferhyrndri gataðri áferð.

SV SERENITY-ÞEMA

Hreinræktaður munaður með áhersluatriðum sem undirstrika sérstöðuna.

ÁSÝND OG SMÁATRIÐI

Hver einasti millimetri af SV Serenity-þemanu hefur munað að markmiði. Smáatriði á ytra byrði í bronslit og tveggja tóna litaþema undirstrika eftirtektarverða eiginleika bílsins.

ENN MEIRA SÉRSNIÐ

Hægt er að gera SV Serenity-þemað á ytra byrðið enn meira afgerandi með bronsáherslulit á þaki og 23" 1077-felgum með dökkgrárri glansáferð og satínbronsinnfellingum.​

MÓSAÍKINNGREYPING

Áherslan á smáatriðin er augljós í fallegum nýjum klæðningum og listum með inngreypingu og málminnfellingum með mósaíkmynstri. Mósaíkútsaumur á sætunum fullkomnar innanrýmið.

VÉLAR Í NÝJUM RANGE ROVER SV

TENGILTVINNBÍLL (PHEV)

TENGILTVINNBÍLL (PHEV)

Range Rover SV er í boði með nýrri tengiltvinnaflrás með auknu drægi**. 3,0 lítra 6 strokka Ingenium-bensínvélin með 105 kW mótor skilar samtals 510 hestöflum.

SKOÐA NÁNAR

SVO-SÉRSMÍÐADEILD

SVO-SÉRSMÍÐADEILD

Einstakir Land Rover-bílar.
NÝR RANGE ROVER

NÝR RANGE ROVER

Skoðaðu alla Range Rover-línuna.

* Fer eftir vali á litaþema.
* *Í boði frá janúar 2022.