Ferðamöguleikarnir eru óþrjótandi í fjölhæfum SUV-bíl sem sérhannaður er fyrir fjölskyldulífið. Tilbúinn í ævintýrið með fjölbreyttu úrvali hagnýtra aukahluta.
DISTINCTIVE DISCOVERY DNA
Fjölhæf hönnun og tilbúinn í öll fjölskylduævintýri þín.
DISTINCTIVE DISCOVERY DNA

FRAMSÆKIN NÝSKÖPUN

Fljótandi 11,4 tommu, bogadregni Pivi Pro1 snertiskjárinn er fullur af upplýsinga- og afþreyingareiginleikum. Discovery Sport vel búinn fyrir öll þín ævintýri.

PIONEERING INNOVATION

RAFMÖGNUÐ SPARNEYTNI

Tengiltvinnbíllinn (PHEV) býður upp á þægindi og sveigjanleika með allt að 61 km* vottuðu drægi á rafmagni.* Hraðhleðsla með jafnstraumi frá 0 til 80 prósent tekur um 30 mínútur.

ELECTRIFIED EFFICIENCY

INNBLÁSTUR

Hönnuðir okkar hafa galdrað fram bíla þar sem fjölhæfni og akstursgeta eru í fullkomnum hlutföllum og þú þarft bara að velja og panta.

INSPIRATION

VAL UM GERÐ

Veldu á milli þriggja áreiðanlegra gerða fyrir næsta ævintýri fjölskyldunnar.

DISCOVERY SPORT DYNAMIC HSE

Ótrúlegt pláss, þægindi og kraftur.
SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL

SKOÐA DISCOVERY SPORT

ÓVIÐJAFNANLEG FJÖLHÆFNI

ÓVIÐJAFNANLEG FJÖLHÆFNI

Discovery Sport gerir þér kleift að aka áhyggjulaus með fjölskylduna hvert á land sem er.
EINKENNANDI HÖNNUN

EINKENNANDI HÖNNUN

Aktu um í þægindum og af öryggi í bíl sem er hannaður fyrir hversdagslegar athafnir.
HUGVITSSAMLEG TÆKNI

HUGVITSSAMLEG TÆKNI

Tengd þægindi fyrir alla fjölskylduna með hugvitssamlegu Pivi Pro1 upplýsinga- og afþreyingarkerfi. Discovery Sport er búinn glæsilegum fljótandi 11,4 tommu snertiskjá og nýtir þráðlausar uppfærslur sem gerir tækni bílsins enn betri með tímanum.2
ÁREYNSLULAUS AKSTURSGETA

ÁREYNSLULAUS AKSTURSGETA

Hann getur tekist á við fjölbreytt undirlag með háþróaðri fjöðrun og fyrsta flokks rafknúnum krafti.

**Skoða tölur úr WLTP-prófunum
Uppgefnar tölur eru fengnar úr opinberum prófunum hjá framleiðanda í samræmi við löggjöf Evrópusambandsins með fullhlaðinni rafhlöðu. Eingöngu til samanburðar. Raunveruleg notkun kann að sýna aðrar niðurstöður. Losun koltvísýrings2, eldsneytis- og rafmagnsnotkun og drægi geta verið mismunandi eftir t.d. aksturslagi, umhverfisaðstæðum, farmi, hjólabúnaði, aukahlutum, leiðinni sem ekin er og ástandi rafhlöðu. Tölur um drægi byggjast á fjöldaframleiddum bíl á staðlaðri leið.

Hleðslutími ræðst af fjölda þátta, svo sem aldri, ástandi, hitastigi og fyrirliggjandi hleðslu rafhlöðu, hvernig hleðsla er notuð og lengd hleðslunnar.

1Connected Navigation krefst áframhaldandi áskriftar eftir upphafstímabil sem tilgreint er af söluaðila Land Rover.[
2Aðeins samhæfir snjallsímar. Ræðst af farsímakerfi á markaði, sendistyrk og reikningi viðskiptavinar. Krefst farsímagagna eða Wi-Fi tengingar. Þráðlaus uppfærsla hugbúnaðar er háð samþykki ökumanns, nettengingu og markaðsframboði.

Meridian er skráð vörumerki Meridian Audio Ltd. Trifield og „three fields“-tækið er vörumerki Trifield Productions Ltd.

Hafðu í huga að staðalbúnaði kann að vera skipt út þegar aðrir útlitspakkar eru valdir. Staðalbúnaður kann einnig að fara eftir vali á vél og gírkassa.

Aukabúnaður og framboð á honum geta verið háð tæknilýsingu bíls (gerð og aflrás) eða geta krafist uppsetningar á öðrum búnaði. Hafðu samband við söluaðila til að fá nánari upplýsingar eða útfærðu bílinn þinn á netinu.

Ökumenn ættu einungis að nota búnað í innanrými bílsins þegar það er öruggt. Ökumenn þurfa að tryggja að þeir hafi fulla stjórn á bílnum öllum stundum.

Eiginleikar og valkostir Pivi og InControl, þjónusta þriðju aðila og framboð þeirra er misjafnt eftir markaðssvæðum. Upplýsingar um framboð og skilmála fást hjá næsta söluaðila Land Rover. Tilteknum búnaði fylgir áskrift sem krefst áframhaldandi áskriftar eftir upphafstímabil frá söluaðila. Ekki er hægt að ábyrgjast tengingu við farsímakerfi á öllum svæðum. Upplýsingar og myndefni sem tengjast InControl-tækninni, þ.m.t. skjáir eða myndaraðir, eru háð hugbúnaðaruppfærslum, útgáfum og öðrum kerfisbreytingum eða breytingum á grafík og fara eftir þeim aukabúnaði sem er valinn.