ÁBYRGÐ Á VARAHLUTUM OG AUKAHLUTUM

ÁBYRGÐ Á VARAHLUTUM OG AUKAHLUTUM

TRYGGING FYRIR AUKAHLUTI FRÁ LAND ROVER

Þegar varahlutir og aukahlutir frá Land Rover eru settir upp eða afhentir hjá Land Rover-umboði eða á viðurkenndri þjónustumiðstöð falla þeir undir sömu ábyrgð framleiðanda, séu þeir keyptir innan eins mánaðar eða 1000 ekinna mílna frá afhendingu bílsins. Utan þess tíma gildir 24 mánaða ábyrgð á kostnaði við viðgerð eða skipti.

HVAÐ ER INNIFALIÐ

HVAÐ ER INNIFALIÐ

Öllum aukahlutum sem Land Rover hefur samþykkt og Land Rover-umboð eða viðurkennd þjónustumiðstöð afhendir fylgir 24 mánaða ábyrgð.
Ef aukahlutir sem Land Rover hefur samþykkt eru settir upp innan eins mánaðar eða 1000 ekinna mílna (hvort sem á undan verður) frá afhendingu Land Rover-bílsins falla þeir jafnframt undir þriggja ára ábyrgð framleiðanda.

ÖRYGGI Í ÖLLUM ÆVINTÝRUM

Land Rover-bíllinn þinn er hannaður til að flytja þig nær hvert á land sem er og sérstöku ábyrgðirnar vernda fjárfestinguna þína á meðan þú keyrir.

ÁBYRGÐIR

ÁBYRGÐIR

Njóttu áfram hugarróar heima og heiman með Land Rover-ábyrgðum* – sem allar eru sérstaklega hannaðar fyrir Land Rover-eigendur.
VIÐBÓTARTRYGGING

VIÐBÓTARTRYGGING

Áframhaldandi hugarró fæst með viðbótartryggingu Land Rover, sem tekur við þegar þriggja ára ábyrgð framleiðanda lýkur. Öll viðgerðarvinna fer fram hjá þjálfuðum tæknimönnum Land Rover sem nota varahluti frá Land Rover.
LAKK- OG RYÐVARNARÁBYRGÐ

LAKK- OG RYÐVARNARÁBYRGÐ

Þótt Land Rover-bíllinn þinn sé hannaður fyrir erfiðar aðstæður er betra að vernda hann eftir því sem kostur gefst svo hann líti alltaf sem best út. Samkvæmt ábyrgðinni gerir viðurkenndur þjónustuaðili Land Rover við eða skiptir um tærða hluta yfirbyggingarinnar eða lakkskemmdir.

SKILMÁLAR

*UNDANÞÁGUR FRÁ ÁBYRGÐ



Þótt ábyrgðin sé jafnöflug og Land Rover-bíllinn sjálfur er hún ekki altæk og nær þannig ekki yfir það sem er lagað eða skipt um í reglubundnum þjónustuskoðunum eða viðhaldi. Að sama skapi nær hún ekki yfir viðgerðir eða skipti sem eru bein afleiðing af:

- Eðlilegu sliti

- Vanrækslu á viðhaldi bílsins í samræmi við viðhaldsáætlanir og þjónustuleiðbeiningar Land Rover

- Notkun á röngu eldsneyti, t.d. bensíni í stað dísilolíu

- Vanrækslu á því að nota þá varahluti eða vökva sem Land Rover tilgreinir (eða varahluti af sambærilegum gæðum)

- Tjóni vegna vanrækslu, slyss eða rangrar notkunar

- Óheimilum breytingum á bílnum eða hlutum hans (breytingum sem samræmast ekki tæknilýsingum Land Rover)



AÐRAR UNDANÞÁGUR



Land Rover-ábyrgðin þín bætir ekki óþægindi, samgöngutap, tapaðan tíma eða annað tilfallandi eða afleitt tjón sem þú eða einhver annar gætir hafa orðið fyrir vegna galla sem er tryggður.

Aðeins er hægt að kaupa viðbótartryggingu á meðan bíllinn er í upprunalegri ábyrgð.