LAND ROVER DISCOVERY

LAND ROVER DISCOVERY

FJÖLHÆFASTI SJÖ SÆTA JEPPINN Á MARKAÐNUM.
SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL

HELSTI BÚNAÐUR

HÖNNUN

HÖNNUN

Markviss gæðahönnun með lægri og breiðari stöðu.
SVEIGJANLEIKI

SVEIGJANLEIKI

Nýr Discovery er fjölhæfur sem aldrei fyrr.
AKSTURSGETA

AKSTURSGETA

Nýr Discovery hentar fullkomlega fyrir spennandi fjölskyldubíltúra.
TÆKNI BÍLSINS

TÆKNI BÍLSINS

Pivi Pro er fullkomnasta upplýsinga- og afþreyingarkerfið okkar til þessa.

HÖNNUN

SKOÐA MYNDASAFN

SKOÐA YTRA BYRÐI

Nýjungar í hönnun gefa Discovery lægri og breiðari stöðu. Allt frá nýjum aðalljósum og afturljósum til fallegs framgrills og nýrra stuðara. Aukin samfella í útliti afturhluta og nýjar 20–22" felgur gefa bílnum enn nútímalegra yfirbragð.
SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL
MARGSKIPT LED-AÐALLJÓS

MARGSKIPT LED-AÐALLJÓS

Ný afgerandi ljós með einkennandi lögun og margskipt LED-aðalljós hámarka útsýnið.
SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL
LAND ROVER DISCOVERY

LAND ROVER DISCOVERY

Einkennandi hönnun. Fjöldi látlausra en fágaðra breytinga gerir Land Rover Discovery enn fallegri.
LAND ROVER DISCOVERY R‑DYNAMIC

LAND ROVER DISCOVERY R‑DYNAMIC

Land Rover Discovery R-Dynamic býður upp á vel heppnaða blöndu sportlegra eiginleika og fjölhæfni. Með einstakri hönnun stuðara, felgna og afturljósa.

SVEIGJANLEIKI

7 SÆTI

7 SÆTI

258 lítrar


Hægt er að fá bílinn afhentan með þriðju sætaröðinni með góðu rými fyrir sjö fullorðna. Blautvigtargildið hér að ofan jafngildir 172 lítrum í þurrvigt.

Blautvigt er staðlað gildi sem mælt er með því að fylla farangursrýmið af vökva. Þurrvigt er mæld með gegnheilum kubbum (200 x 50 x 100 mm) og hún sýnir hversu mikið pláss er nýtanlegt í innanrými bílsins.

SJÖ SÆTI Í FULLRI STÆRÐ

SJÖ SÆTI Í FULLRI STÆRÐ

Ef þú lendir oft í því að huga að akstri fyrir allt að sjö einstaklinga, hvort sem er með börnunum eða vinunum, er sjö sæta Land Rover Discovery fullkomin lausn fyrir hversdaginn þinn. Sæti við afturhlera og hiti í öllum sætaröðum tryggja svo öllum hámarksþægindi meðan á akstri stendur.
NOTAGILDI

NOTAGILDI

Allt á sinn stað í Land Rover Discovery, hvort sem er í hurðum eða duldum geymslurýmum. Þá fæst óviðjafnanlegur sveigjanleiki með hagnýtum búnaði á borð við mörg USB-C hleðslutengi og stillingu annarrar og þriðju sætaraðar með takka.
RAFDRIFIN ÞÆGINDI

RAFDRIFIN ÞÆGINDI

Land Rover Discovery er búinn fjölbreyttum búnaði sem léttir undir með þér. Rafknúinn afturhleri með handfrjálsri opnun gerir þér kleift að opna afturhlerann með fangið fullt. Þess utan er hægt að breyta rafdrifna innri afturhleranum í sæti á mannamótum eða þegar taka þarf skítugu stígvélin af krökkunum.
ÖRYGGI

ÖRYGGI

Land Rover Discovery er með fimm stjörnu öryggiseinkunn í árekstrarprófunum Euro NCAP. Öryggi fjölskyldunnar er tryggt með allt að fimm ISOFIX-festingum, fjölbreyttum akstursaðstoðarbúnaði sem auðveldar ökumanni að aka og leggja bílnum og allt að átta loftpúðum fyrir ökumann og farþega.

AKSTURSGETA

VÉLAR Í HYBRID-BÍL MEÐ SAMHLIÐA KERFI

VÉLAR Í HYBRID-BÍL MEÐ SAMHLIÐA KERFI

Hreinni. Sparneytnari. Vélar í hybrid-bíl með samhliða kerfi nota rafhlöðu til að endurheimta, geyma og endurnýta orku sem allajafna glatast við hraðaminnkun. Í boði með D250-, D300- og P360-vélum.

TÆKNI BÍLSINS

Pivi Pro upplýsinga- og afþreyingarkerfið okkar er einstaklega einfalt í notkun og alltaf virkt og alltaf til taks. Á meðal staðalbúnaðar er: 

- 11,4” snertiskjár
- Stafrænt útvarp
- Nýhannað viðmót
- Apple CarPlay® 1
- Android Auto™ 2
- Remote3

Þú nýtur einnig ávinnings eftirfarandi eiginleika:

- Hröð ræsing
- Gervigreind
- Glæný hugvitssamleg leiðsögn4
- Tvívíð og þrívíð kort með sjálfvirkum uppfærslum
- Umferðarupplýsingar í rauntíma
PIVI OG PIVI PRO
MERIDIAN SURROUND-HLJÓÐKERFI
HUGBÚNAÐARUPPFÆRSLUR

HUGBÚNAÐARUPPFÆRSLUR

Hugbúnaðaruppfærslur tryggja að bíllinn sé alltaf með nýjustu hugbúnaðarútgáfuna6. Hægt er að uppfæra upplýsinga- og afþreyingarkerfi bílsins, fjarvirkni og ýmsar stjórneiningar í gegnum ytri tengingu til að tryggja hámarksafköst. Það þýðir að bíllinn verður einfaldlega betri og betri.
NETTENGINGARPAKKI

NETTENGINGARPAKKI

Nettengingarpakkinn7 8 veitir enn frekari netþjónustu með innbyggðu SIM-korti, sem býður upp á aðgang að:

- Ótakmarkaðri straumspilun
- Veðurspá
- Samstillingu við netdagatal
ÞRÁÐLAUS HLEÐSLA

ÞRÁÐLAUS HLEÐSLA

Hægt er að fá bílinn afhentan með þráðlausri hleðslu fyrir tæki með tengimagnara fyrir síma og þá geturðu hlaðið samhæfa snjallsíma án þess að nota snúrur eða hleðslukví. Þegar þú ert í bílnum notar síminn þinn loftnet bílsins til að bæta tenginguna og skila skýrari símtölum.
LOFTHREINSIKERFI FYRIR FARÞEGARÝMI MEÐ PM2,5-SÍU

LOFTHREINSIKERFI FYRIR FARÞEGARÝMI MEÐ PM2,5-SÍU

NanoeTM jónað loft er aukabúnaður sem eykur velferð ökumanns og farþega. Þegar þú virkjar PURIFY-hnappinn fangar sérhönnuð sían agnir úr andrúmsloftinu, svo sem PM2,5 og ofnæmisvalda á borð við ryk og frjókorn.
SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL

SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL

Fjölhæfasti jeppinn okkar til þessa. Notaðu hönnunarsvæðið til að hanna þinn Land Rover Discovery.
SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL

SKOÐA NÁNAR

VELDU ÞINN  LAND ROVER DISCOVERY

VELDU ÞINN LAND ROVER DISCOVERY

Hér er að finna alla vörulínu og ótal valkosti hvað varðar framúrskarandi hönnun, akstursaðstoð og tæknibúnað.
MYNDASAFN

MYNDASAFN

Áherslan á smáatriði bílanna okkar hefur ávallt verið í fyrirrúmi. Land Rover Discovery lætur ljós sitt skína.
TÆKNILÝSING

TÆKNILÝSING

Kynntu þér smáatriðin. Fáðu frekari upplýsingar um afkastagetu, mál og eldsneytisnotkun véla.
LAND ROVER - AUKAHLUTIR

LAND ROVER - AUKAHLUTIR

Glæsilegur, öflugur og hentugur: Sérsníddu þinn Discovery enn frekar með góðu úrvali aukahluta og pakka fyrir ytra byrði og innanrými.
LEITA AÐ AUKAHLUTUM

The figures provided are manufacturer’s estimates and will be replaced with the official EU test figures as soon as they are available. For comparison purposes only. Real world figures may differ. CO2 and fuel economy figures may vary according to factors such as driving styles, environmental conditions, load, wheel fitment and accessories.


Tölurnar eru reiknaðar samkvæmt NEDC2 á grunni WLTP-prófana hjá framleiðanda í samræmi við löggjöf Evrópusambandsins. Eingöngu til samanburðar. Raunveruleg notkun kann að sýna aðrar niðurstöður. Tölur um koltvísýring og sparneytni geta verið breytilegar eftir hjólabúnaði og aukabúnaði. NEDC2-tölur eru reiknaðar samkvæmt forskrift opinberra aðila á grunni talna úr WLTP-prófunum sem eru jafngildi þess sem þær hefðu verið í eldri gerð NEDC-prófana. Að því loknu er hægt að leggja á viðeigandi skatta.


Skoðaðu tölur úr WLTP-prófun
WLTP er nýja opinbera ESB-prófunin sem notuð er til að reikna út staðlaðar tölur um eldsneytisnotkun og koltvísýring fyrir fólksbíla. Hún mælir eldsneytis- og orkunotkun, drægi og útblástur. Henni er ætlað að skila tölum sem eru nær raunverulegu aksturslagi. Hún prófar bíla með aukabúnaði og prófunum og akstursstillingum sem eru meira krefjandi.


1 Bíllinn er tilbúinn fyrir Apple CarPlay. Þjónustan sem Apple CarPlay veitir veltur á því hvaða búnaður er í boði í þínu landi. Fáðu frekari upplýsingar á https://www.apple.com/uk/ios/feature-availability/#apple-carplay.

2 Bíllinn er tilbúinn fyrir Android Auto. Þjónustan sem Android Auto veitir veltur á því hvaða búnaður er í boði í þínu landi. Fáðu frekari upplýsingar á https://www.android.com/auto/.

3 Land Rover Remote felur í sér áskriftarþjónustu sem hægt er að framlengja eftir upphafstímabil sem tilgreint er af söluaðila Land Rover. Land Rover Remote-forritið þarf að sækja í Apple App Store/Google Play Store.

4 Connected Navigation krefst áframhaldandi áskriftar eftir upphafstímabil frá söluaðila Land Rover.

6 Updates will require data connection.

7 Fair use policy may apply. Includes 1-year subscription which can be extended after the initial term advised by your Land Rover Retailer.

8 Fair use policy applies. After 20GB of data is used within a month, data speeds and functionality on the vehicle may reduce for the rest of the month.
For details of the Fair Usage Policy associated with this feature, please refer to the InControl Pivi Pro Terms at www.landrover.com/pivi-pro-terms.
Playback time is dependent on streaming provider and the definition of the video content.
HD video will significantly increase data usage.


In car features should be used by drivers only when safe to do so. Drivers must ensure they are in full control of the vehicle at all times.

Aukabúnaður og framboð á honum getur verið háð tæknilýsingu bíls (gerð og aflrás) eða getur krafist uppsetningar á öðrum búnaði. Hafðu samband við söluaðila til að fá nánari upplýsingar eða útfærðu bílinn þinn á netinu.

Eiginleikar og valkostir Pivi og InControl, þjónusta þriðju aðila og framboð þeirra er misjafnt eftir markaðssvæðum – upplýsingar um framboð og skilmála fást hjá næsta söluaðila Land Rover. Ekki er hægt að tryggja tengingu við farsímakerfi á öllum svæðum. Upplýsingar og myndefni sem tengjast InControl-tækninni, þ.m.t. skjáir eða myndaraðir, eru háð hugbúnaðaruppfærslum, útgáfum og öðrum kerfisbreytingum eða breytingum á grafík og fara eftir þeim valkostum sem eru valdir.

Ökumenn ættu einungis að nota búnað í innanrými bílsins þegar það er öruggt. Ökumenn þurfa að tryggja að þeir hafi fullkomna stjórn á bílnum öllum stundum.

Apple CarPlay er vörumerki Apple Inc. Notendaskilmálar Apple Inc. gætu átt við.
Android Auto er vörumerki Google LLC.

Meridian er skráð vörumerki Meridian Audio Ltd. Trifield og „three fields“-tækið eru vörumerki Trifield Productions Ltd.

NanoeTM er skrásett vörumerki Panasonic Corporation.