Skerðu þig úr eða vertu í náttúrulitum, allt eftir því hvaða liti þú velur.
Ekki eru allir valmöguleikar sýndir
FELGUR
Kannaðu heiminn af öryggi, hvort sem er á vegi eða í torfærum, og veldu úr miklu úrvali af felgum, frá 19 tommu til 22 tommu.
AUKABÚNAÐUR Á ÞAK
Vertu í tengslum við umhverfið með föstum eða opnanlegum þakglugga. Eða sendu skýr skilaboð með Narvik-svörtum áherslulit á þaki.
AUKAHLUTIR
Sérsníddu Discovery enn frekar með flottum, sterkbyggðum og notadrjúgum aukahlutum fyrir ytra byrði og innanrými.
FYRIR FJÖLSKYLDUNA
Stígðu um borð og af stað í næsta ævintýri með föstum eða inndraganlegum stigbrettum. Hafðu ofan af fyrir farþegunum á leiðinni með afþreyingarbúnaði og geymsluhólfum með smellukerfi.
Það skiptir engu máli hvert þú ferð, þú getur haldið Discovery lýtalausum með fjölbreyttu úrvali aukahluta sem vernda bílinn, eins og gúmmímottum í farþegarými, aurhlífum og innbyggðri myndavél í mælaborði.